Jæja þá er ég
loksins genginn í gönguhóp sem trúlega er að ganga af vitinu,
tók þátt í maraþongöngu á hundaþúfu á Hellisheiði, þessi
hundaþúfa er að vísu ansi há af hundaþúfu að vera, og enginn
var þar hundaskíturinn heldur þannig að sennilega er þetta
bara ekki nein hundaþúfa eftir allt, enda ekki nema tæpir
600m á hæð...
sennilega eru það metrar yfir sjávarmáli þó ekki hafi það
komið fram á nefmælingum Þórðar. Ég lifði þessar hremmingar
allar af enda er ég afburða göngumaður og var vel út búinn í
slíka svaðilför, með nýja (eða næstum því) strigaskó og
stuttermabol og 1 svala í nesti. Það er bara ekki hægt að
fara þungklyfjaður í svona fjallgöngur. Hópurinn nefnir sig
Eitt skref í einu, en mér finnst að hann ætti að heita Týndur
og fundinn. Ekki vil ég leyfa þórði að meta það oftar hvað sé
bratt og hvað ekki bratt því hann eltir bara á sér nefið og
fer beint af augum eða þannig. Þetta nef hans mældi okkur
líka á þessu þægindar rölti á tæplega 60 km hraða.
Ekki
furða þó
ferðin hafi tekið stuttan tíma og n.b. þetta var á leiðinni
upp, ég þorði ekki að spyrja hver hraðinn var á leiðinni
niður, en ekki vil ég setja sjóarann í lögguna að hraðamæla.
Þoka var þarna og var ekki, fer eftir hvort horft var upp
fjallið áður en við lögðum af stað eða eftir að við höfðum
verið þar, sólin var þarna líka, bara ekki á sama tíma og
við. Var að fá meil frá Önnu um hvaða hundaþúfa verður næst
fyrir barðinu (skósólunum) á okkur. Lýst vel á það, nánar um
það síðar.
Meira bull
frá mér síðar....